Fréttir
21.2.2012
iPlat: Sutt og skilmerkileg yfirsýn yfir Apple vs Proview málið
iPad vörumerkið varð fljótt og örugglega eitt af þekktustu vörumerkjum heims og spjaldtölvan sísnjalla ein eftirsóttasta jólagjöfin árið 2011. En hver vissi þá að kínverskt fyrirtæki hefði sýnt fádæma fyrirhyggju og skráð iPad vörumerkið árið 2001? Auðvitað hefði Apple átt að vita það.
Og Apple vissi það líka. Enginn risi á borð við Apple fer af stað með nýja vöru eða inn á nýjan markað án þess að vinna heimavinnuna sína, rannsaka markaðinn og eignast rétt á öllum vörumerkjum sem þeir hyggjast nota. Þetta eru viðtekin vinnubrögð í hugverkageiranum og nánast skylda áður en farið er af stað. Kína er einn stærsti markaðurinn fyrir Apple og því óhætt að fullyrða að fyrirtækið hafi leitað af sér allan grun áður en farið var af stað með markaðssetningu iPad-spjaldtölvanna. Enda fann Apple út úr því að umrætt merki væri á nokkrum lykilmörkuðum í eigu fyrirtækis sem heitir Proview. Apple fékk því fyrirtækið IP Application Development Limited í Bretlandi til þess að kaupa merkin fyrir sig fyrir 35.000 sterlingspund þann 23. desember 2009 og taldi málinu lokið í kjölfarið. Spjaldtölvan var svo kynnt árið 2010.
Málið er þó töluvert flóknara en virðist í fyrstu.
IP Application Development samdi við fyrirtæki sem heitir Proview Electronics í Tævan, sem er fyrirtæki sem var undir stjórn manns sem heitir Yang Long-San (Rowell Yang). Sá maður var lýstur gjaldþrota í ágúst árið 2010, en stýrði fyrirtækinu á þeim tíma sem um ræðir, ásamt því að stýra Proview International Holdings Limited, Proview Technology í Shenzhen í Kína og Yoke Technology í Shenzhen í Kína, sem virðast vera hluti af sömu samsteypunni.
Þegar iPadinn kom á markað árið 2010 heyrðist þó hljóð úr horni Proview Technology í Shenzhen í Kína, þar sem þeir héldu því fram að þeir væru enn lögmætir eigiendur vörumerkisins og að Apple væri að brjóta á þeim með markaðssetningu og sölu tölvunnar, enda hefði aldrei verið samið við Proview Technology, heldur við Proview Electronics. Þó snúast deilurnar ekki um vörumerkin í hinum sjö löndunum eða Evrópusambandsvörumerkið sem skiptu um eigendur þegar samningurinn var gerður – einungis er deilt um tvö vörumerki skráð í Kína. Hvorugt fyrirtækið hefur gert samninginn opinberan, en þó hafa fjölmiðlar komið höndum yfir tölvupóstsamskipti sem virðast sýna að Apple hafi löglega eignast umrædd merki og að Proview Electronics í Tævan hafi fullvissað IP Application Development sem keypti merkin um að öll merkin væru í þeirra eigu.
Apple höfðaði mál á hendur Proview International Holdings, Proview Technology, Proview Electronics, Yoke Technology og Rowell Yang í Hong Kong árið 2011 og niðurstaðan úr þeim dómi sem fékkst 20. júní 2011 var Apple í vil, og sagði dómarinn í greinagerðinni að hann væri þess fullviss um að verjendurnir áformuðu að koma bragði á Apple.
Apple höfðaði svipað mál í Shenzhen, þar sem réttarkerfið í Hong Kong og á meginlandi Kína eru ekki að fullu samræmanleg, en undirréttur í Shenzhen úrskurðaði Apple í óvil og dæmdi samninginn ógildan þar sem Proview Technology í Shenzhen hefði hvergi komið að samningaborði í málinu. Þessi dómur féll í nóvember á síðasta ári, en Apple getur enn áfrýjað úrskurðinum. Þó eru iPad tölvurnar þegar farnar að hverfa úr hillum verslana víðs vegar í Kína og það er ekki vegna aukins kauphita.
Aðferðafræði Proview virðist vera að reyna að komast hjá því að afhenda merkin sem eru skráð í Kína vegna tæknilegs útfærsluatriðis við samningagerðina, en orðið á götunni er það að ásetningur fyrirtækisins sé augljóslega fjárhagslegur ávinningur af einhverju tagi, enda sé Proview International Holdings í töluverðum fjárhagsvanda. Proview-samsteypan stakk raunar upp á að Apple ætti bara að borga þeim dágóða summu bandaríkjadala fyrir merkin, enda kannski fundist að sér vegið þegar þeir komust að því að Apple væri að baki kaupunum og hefði aðeins greitt 35 þúsund sterlingspund (tæplega 7 milljónir ISK á núgengi) á sínum tíma. Verðmiðinn hefur hækkað aðeins undafarið – sakborningarnir lögðu upp með 10 milljón bandaríkjadali (1,25 milljarðar ISK), en heyrst hefur að lánadrottnar Proview meti merkin á allt að 2 milljarða bandaríkjadala, væntanlega í því skyni að hámarka heimtur sínar, en það eru ríflega 248 milljarðar ISK. Til samanburðar hefur verið áætlað að Harpan hafi kostað um 37 milljarða ISK fyrir afskriftir.
Heldur þykknar þó í súpunni sem Apple situr raunar í. Spjaldtölvurnar eru settar saman og framleiddar í Kína og Apple stendur nú frammi fyrir því að allur inn-og útflutningur á tölvunni geti stöðvast á meðan málið er fyrir dómstólum. Í stað þess að standa á gróðafjalli stendur Apple því á barmi taphyldýpis – tölvan góða seldist nefnilega fyrir 12,5 milljarða bandaríkjadala í Kína frá september 2010 til september 2011.
En fingur beinast að fleirum en Proview. Þeir hafa raunar haldið því fram að Apple hafi viljandi villt um fyrir þeim þegar merkin voru seld til að byrja með og þeir hafi ekki vitað að Apple stæði á bakvið IP Application Development Limited (einnig kallað IPADL , sem er varla tilviljun). Það má því segja að seljendurnir hefðu getað hækkað söluverðið umtalsvert hefðu þeir vitað við hvern þeir voru að etja. Að sama skapi má hins vegar halda því fram að Apple væri að hegða sér í öllu eðlilega með því að gera kaupin í gegnum annað fyrirtæki, enda vildi það standa vörð um nýja vöru og ekki gefa samkeppnisaðilanum færi á að komast yfir upplýsingar um vörumerki sem fyrirtækið væri að sanka að sér á alþjóðavettvangi. Og það eru nákvæmlega rökin sem lögmenn Apple beittu við réttarhöldin í Hong Kong.
Málið er sannarlega áhugavert, þar sem verið er að takast á um brot á hugverkarétti sem ekki snýst um falsanir, eins og margur skyldi ætla þegar mál af þessu tagi eru sótt í Kína, heldur um rétt til vörumerkis sem Apple hefur sannanlega gert að heimsþekktu heiti, en Proview eignaðist áður en i-kynslóðin komst almennilega af teikniborðinu. Apple gæti þó verið líklegt til þess að semja í málinu, þar sem útflutningsbann gæti valdið fyrrnefndu fjárhagslegu tjóni.
Þó er meira í húfi en gróði Apple. Eins og fyrr sagði eru tölvurnar framleiddar í Kína og skapar það um milljón störf eitt og sér. Fyrirtækið sem sér um framleiðsluna, hið tævanska Foxconn Technologies Group, hefur einnig áformað að opna verksmiðjur í Brasilíu til þess að anna framleiðslueftirspurninni og skapa þar með frekari störf, sem vissulega er bráðnauðsynlegt í alheimskreppu. Lítil vörumerkjadeila er því farin að hafa áhrif á heimsvísu og sýnir enn og aftur fram á hversu mikilvæg hugverkaréttindi eru.
Uppfært: Reuters segir á fréttasíðu sinni að Proview sé búið að stefna Apple fyrir rétt í Shanghai, með það að markmiði að hreinsa þá borg algjörlega af spjaldtölvunum, en Shanghai er einn stærsti markaður Apple í Kína. Þar með er aðferðarfræði Proview ekki einungis sú að komast hjá því að flytja réttinn af vörumerkjunum tveimur yfir til Apple með því að halda fram að kaupsamkomulagið hafi ekki verið lagalega bindandi, heldur verja þeir markað sinn með kjafti og klóm. Einnig hefur Apple áfrýjað dóm héraðsdóms í Shenzhen og bíður nú áheyrnar, sem mun vera þann 29. febrúar í hæstarétti Guangdonghéraðs.
Myndir 2 og 3 fengnar frá All Things D
Heimildir:
Fréttir
Heim:
FréttirToppmynd







