Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu vefs

Fréttir

23.1.2012

MegaUpload-máliđ: Allt sem fer upp kemur niđur um síđir

Enn einn hildarleikurinn hefur verið háður á völlum alnetsins og í þetta sinn voru það hagsmunaaðilar og eigendur hugverkaréttar sem unnu orrustuna. Á meðan biðu þeir ósigur sem horfa á og hlaða upp höfundaréttarvörðu efni, þar sem ein vinsælasta síðan sem iðkendur nota til slíks brúks var lokað nú síðasta fimmtudag. FBI í Bandaríkjunum sá um að loka síðunni www.megaupload.com og öllum systursíðum hennar, á meðan lögregluyfirvöld á Nýja Sjálandi handsömuðu stofnanda og fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins Megaupload Ltd., eftir að Bandaríkjamenn gáfu út handtökuskipun á hann og sex lykilstasrfsmenn fyrirtækisins. Yfirvöld á Nýja Sjálandi handsömuðu stofnandann, Kim Dotcom, og tvo aðra starfsmenn hans, en hinir fjórir eru niðurkomnir á öðrum stöðum í heiminum – sumir hafa verið handsamaðir en aðrir ekki. Sjömenningarnir standa frammi fyrir ákærum á borð við peningaþvætti, stórfellt brot á höfundarétti og fjárglæfrasamsæri, en allsherjarkviðdómur í Virginíufylki gaf út ákærurnar á hendur þeim.

The_megaupload_metldown

Vopnahlé varð þó ekki langt. Um leið og síðurnar höfðu verið teknar niður réðst hópur tölvuþrjóta sem kallar sig Anonymous til verks og tók niður þó nokkrar vefsíður í því skyni að lýsa yfir stuðningi við Megaupload Ltd. Á meðal síðanna sem urðu fyrir árás var síða bandaríska dómsmálaráðuneytisins, ásamt nokkrum síðum kvikmyndavera. Þó er áhugavert að ekki heyrist hljóð úr einu horni sem annars hefur verið hávært undanfarið – sænska Kopimistasamfélagið hefur enn ekki tjáð sig um málið og er þögn þeirra orðin ansi áberandi.

Í fljótu bragði virðist þó undarlegt að Bandaríkjamenn séu að hafa afskipti af Megaupload Ltd., þar sem fyrirtækið er skráð í Hong Kong. Sé hins vegar kafað ögn dýpra kemur í ljós hvers vegna Bandaríkjamenn hafa lögsögu í málinu – rótarlén síðunnar sem um ræðir er .com, og skráningaraðili .com lénanna er í Bandaríkjunum – nánar tiltekið í Virginíufylki. Þó verður að framselja Kim og félaga til Bandaríkjanna áður en hægt verður að stefna þeim fyrir rétt, en verði framsalinu andmælt má gera ráð fyrir að réttarhöldum vestra yrði frestað – jafnvel um ókomna tíð.

the megaupload meltdown diagram

Ţví hefur raunar verið haldið fram að tímasetning þessarar aðgerðar hafi síður en svo verið tilviljun. Eins og við sögðum frá í síðustu viku hafa mótmælaraddir þeirra sem leggjast gegn SOPA / PIPA frumvörpunum verið ansi háværar og náðu raunar hápunkti síðasta miðvikudag með netmyrkvanum mikla. Aðgerðir FBI varpa því skýru ljósi á þá staðreynd að þessi frumvörp eru á engan hátt nauðsynleg vilji ríkisvaldið losna við síður sem eru skráðar á rótarlénum sem Bandaríkjamenn hafa umsjón með og að FBI hafi verið vel innan lagarammans með því að ráðast til atlögu gegn síðu sem bæði dreifði ólöglegu efni og gerði það aðgengilegt án niðurhals. Auðvitað geta Bandaríkjamenn eingöngu beitt sér gegn síðum sem eru hýstar innan landamæra sinna, en því myndi SOPA frumvarpið breyta.

Ţað er þó ákveðið vandamál að þegar sé búið að loka Megaupload síðunum. Sú aðgerð hefur verið nokkuð gagnrýnd og orkar tvímælis, þar sem sjömenningarnir eru enn ódæmdir. Aukinheldur hafa þeir notendur sem hafa hlaðið upp fullkomlega löglegu efni líklega tapað því öllu og upp úr því hefur myndast umræða um öryggi þess að vista skrár á svokölluðum “netskýjum” (cloudshare), ef sú hætta er fyrir hendi að gögnin séu þurrkuð út án nokkurrar viðvörunar. Notendur verða því að velja sína þjónustu af kostgæfni.

Ţað verður að teljast áhugavert að Megaupload Ltd. hafi eytt tíma og kröftum í að láta líta svo út fyrir að starfsemi þeirra sé lögleg. Þeir hafa haldið því fram að þeir eigi heimtingu á “öruggri höfn” sem DMCA-lögin í Bandaríkjunum útvega vefsíðum sem vita ekki eða geta ekki vitað af ólöglegu efni sem í gegnum þær fer. Hins vegar hafa innanhússamskipti komið fram í dagsljósið sem sýna glögglega að starfsmenn fyrirtækisins vissu fullvel af ólöglegu efni innan síðunnar og eru jafnvel dæmi þess að þeir hafi deilt krækjum á höfundaréttarvarið efni sín á milli. Þar með hafa þeir fyrirgert rétti sínum til verndar samkvæmt DMCA-lögunum.

Samkvæmt íslenskum lögum er ólöglegt að dreifa höfundaréttarvörðu efni, en notendur sem gera ekkert annað en að horfa á slíkt efni innan vefsíðna (e. streaming) eru strangt til tekið ekki að stunda ólöglega starfsemi. Þó er rétt að ítreka að þetta er mjög grátt svæði í lagalegum skilningi og ekki eingöngu spurning um lög, heldur einnig um siðferði.

Ţó er eitt stærsta vandamálið sem ákæruvaldið stendur frammi fyrir í þessu máli það að notendur vefsíðunnar og annarra sambærilegra síðna gætu orðið mjög háværir. Þó verða notendur að átta sig á því að þó að það virðist sárasaklaust að streyma efni á netinu, er ekki útilokað að slíkar athafnir geti stuðlað að annarri glæpastarfsemi með einum eða öðrum hætti.

Við munum halda áfram að fylgjast með þessu máli af athygli á næstu vikum.

Uppfært:
Ákæruna má nálgast hér (The Wall Street Journal).
Handtökur: Nú gengur aðeins einn af sjömenningunum laus. Tveir voru nýlega handteknir, Þjóðverji og Eisti. Sá var handsamaður í Hollandi, en Þjóðverjinn í Þýskalandi. Þjóðverjar framselja þó aldrei þýska ríkisborgara. (Reuters)

Heimildir:



Fréttir


Heim:

Fréttir

Toppmynd


Flýtileiđir


Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta