Einkaleyfi
Að fá einkaleyfi fyrir nýrri uppfinningu getur verið umfangsmikill ferill sem spannar nokkur ár. Starfsmenn ARNASON FAKTOR hafa víðtæka þekkingu og reynslu á sviði vísinda og laga, sem gerir fyrirtækinu kleift að bjóða alhliða þjónustu varðandi vernd hugverka á sviði líftækni, lyfjafræði, sameindalíffræði, örverufræði og erfðafræði, ásamt öðrum greinum tengdum lífvísindum og efnafræði.
Þjónusta ARNASON FAKTOR er sérsniðin til þess að ná yfir allar hliðar í málarekstri og hagnýtingu einkaleyfa. Þjónusta fyrirtækisins felur í sér ráðgjöf við undirbúning og innlögn einkaleyfaumsókna, auk fjölþættari ráðgjafar eins og að greina einkaleyfi samkeppnisaðila fyrirtækja sem eru að markaðssetja nýjar vörur og hámarka virði hugverkaverndar.
Tækni og hugbúnaður
Með sérmenntuðum ráðgjöfum kappkostar ARNASON FAKTOR að veita viðskiptavinum sínum sérhæfða þjónustu og ráðgjöf í tengslum við hugverkavernd á vörum og hugmyndum sem tengjast tækni og hugbúnaði. Sérfræðiþekking innan fyrirtækisins spannar alla þætti rafmagnsverkfræði, vélaverkfræði og iðnaðarverkfræði auk hugbúnaðargerðar, rafeindatækni og iðnhönnunar.
Einkaleyfi
Heim:
EinkaleyfiToppmynd






