Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Vörumerki 

ARNASON FAKTOR veitir umfangsmikla þjónustu varðandi vörumerki, vörumerkjaþróun og verndun og skráningu auðkenna fyrirtækja, jafnvel áður en merkið er tilbúið af hendi hönnuðarins. Þjónustan er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar með landfræðilega staðsetningu, lagalegar kröfur, starfsemi og markhópa í huga.

Skráning vörumerkis getur reynst mikilvægur hlekkur í vernd hugverkaréttinda fyrirtækja. Ráðgjafar okkar veita ítarlega og sérsniðna ráðgjöf fyrir fyrirtæki sem hafa áhuga á að skrá vörumerki sín, hvort heldur sem er á Íslandi eða erlendis.

Auk skráningar veitum við frekari þjónustu sem snýr að vörumerkjum er nær frá leit, greiningu og tillögum um val á vörumerkjum, til leyfissölu og ráðlegginga um verndun vörumerkja um allan heim.

Í samstarfi við sérhæfð fyrirtæki í vöktunarþjónustu býður ARNASON FAKTOR samfellda vöktun og eftirlit með vörumerkjum út um allan heim, með það að markmiði að fylgjast með og varðveita vörumerki fyrirtækja gegn hugsanlegum brotum af ýmsu tagi. Á sama tíma er í gangi virk starfsemi sem miðar að því að veita ráðgjöf og fræðslu til íslenskra fyrirtækja í samkeppni bæði heima og erlendis.



Vörumerki


Heim:

Vörumerki

Toppmynd


Flýtileiðir


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta