Hönnun
Hönnunarskráningu er ætlað að vernda útlit vöru, hvort sem er að öllu leyti eða að hluta til. Til þess að geta skráð útlit vöru sem hönnun þarf útlitið að hafa til að bera eitthvað sem talist getur vera nýtt. ARNASON FAKTOR veitir viðskiptavinum sínum ráðgjöf um nýnæmi hönnunar og möguleikum á skráningu og vernd hönnunarinnar. Ráðgjöf okkar felur í sér mat á umfangi verndar sem viðkomandi hönnun getur öðlast auk ráðgjafar um hvað felst í þeim réttindum sem skráning á hönnun veitir.
Við aðstoðum viðskiptavini okkar við vinnslu umsókna og viðhald skráningar bæði á Íslandi og erlendis.
Um okkur
Toppmynd







