Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Fréttir

18.1.2012

Netmyrkvinn mikli 2012

Þó nokkrar fjölsóttar síður hafa ákveðið að gerast myrkar í dag, 18. janúar, í þeim tilgangi að mótmæla SOPA/PIPA frumvörpunum í Bandaríkjunum.

Það er þó mikilvægt að veita því athygli að forsvarsmenn þessara vefsíðna eru í meginatriðum sammála því að löggjöf sem snýr að því að hefta ólöglega starfsemi á alnetinu sé nauðsynleg. Það er verið að mótmæla hinni eiginlegu framkvæmd sem frumvörpin fela í sér. Sumir hafa haldið því fram að tvíræðni lagatextans sé sums staðar svo mikil að hægt verði að túlka lögin of vítt með ófyrirséðum afleiðingum. Eru Bandaríkin að ganga inn í tímabil ritskoðunar á netinu? Mun netið eins og við þekkjum það í dag hverfa í svarthol ritskoðunar í þeim tilgangi að vernda hugverkaréttindi?

Ef fer sem horfir þá virðast þessi mótmæli nógu áhrifamikil til þess að koma í veg fyrir að notendur þurfi að horfa upp á alnetið liggja banaleguna. Enda þótt sögusagnir séu á kreiki þess efnis að afþeyingariðnaðurinn standi fast að baki löggjöfinni og vilji þrýsta á að bæði frumvörpin nái fram að ganga, virðist samhljóma dómur alnetsnotenda vera sá að frumvörpin séu of gölluð til að koma að nokkru einasta gagni.

Þau fyrirtæki sem taka þátt í mótmælunum eru því ekki að hunsa hugverkaréttindi svo neinu nemi – síður en svo, ef litið er á staðhæfingu sem Google birti á heimasíðu sinni í dag:

„Það er mikilvægt að berjast gegn sjóræningjastarfsemi á alnetinu. Skilvirkasta leiðin til þess er að loka vefsíðum sem stunda ólöglega starfsemi með því að samþykkja hnitmiðaða löggjöf sem miðar að því að loka fyrir fjármagn þeirra. Það er algjör óþarfi að neyða Bandarískar samfélagssíður, bloggsíður og leitarvélasíður til þess að ritskoða alnetið, eða grafa undan núgildandi lögum sem hafa stuðlað að blómlegum vexti alnetsins, sem og milljónum nýrra starfa í Bandaríkjunum.“

Það er þó nokkuð ljóst að löggjöf í einni eða annarri mynd muni komast í gegnum Bandaríska þingið fyrr eða síðar, þó að SOPA/PIPA frumvörpin muni lúta í lægra haldi. Það er því von að Bandaríkjaþing geti samið frumvarp sem nær að vernda hugverkaréttindi án þess að fórna netinu á altari ritskoðunar.

Hér fyrir neðan má sjá skjámyndir af nokkrum þeim vefsíðum sem voru myrkar í dag.

Black Wednesday - Google
Netmyrkvinn mikli - Google

Black Wednesday - Google 2
Netmyrkvinn mikli - Google startpage

Black Wednesday - Michael Moore

Netmyrkvinn mikli - Michael Moore

Black Wednesday - Protest SOPA org
Netmyrkvinn mikli - Portest SOPA org

Black Wednesday - sopastrike.com
Netmyrkvinn mikli - sopastrike com

Black Wednesday - Wikipedia
Netmyrkvinn mikli - Wikipedia



Fréttir


Heim:

Fréttir

Toppmynd


Flýtileiðir


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta